Huginn vann öruggan 5,5-0,5 sigur á Adare Chess Club  frá Írlandi í fyrstu umferð EM Taflfélaga sem hófst í Bilbao á Spáni í dag. Gawain, Kampen, Þröstur, Einar og Magnús unnu sínar skákir og Hlíðar Þór gerði jafntefli.

bilbaochess2014_1

Andstæðingar morgundagsins er ofursveit frá Rússlandi, Malakhite að nafni, með innanborðs menn eins og Grischuk sem er fjórði á heimslistanum og Karjakin, sem er sjöundi. Auk þeirra eru Leko og Shirov í liðinu sem allir eru með meira en 2700 skákstig.

Heimasíða mótsins

Skákir okkar manna verða birtar hér fyrir neðan, þegar þær verða aðgengilegar.