Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Elfar Ingi Þorsteinsson voru efstir og jafnir með 5v af 6 mögulegum á æfingu 10. september sl. Þeir voru einnig jafnir á öllum stigum en Óttar vann innbyrðis viðureignina í lokaumferðinni sem dugði til sigurs á æfingunni. Tapið gegn Viktor í fyrstu umferð kom þar með ekki að sök hjá Óttari. Þriðji var Viktor Már Guðmundsson með 4,5v og þar þurfti engan stigaútreikning. Tefldar voru fimm umferðir og eitt dæmi lagt fyrir sem gaf einn vinning.
Í æfingunni tóku þátt: Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Elfar Ingi Þorsteinsson, Viktor Már Guðmundsson, Frank Gerritsen, Ívar Örn Lúðvíksson, Brynjólfur Yan Brynjólfsson, Einar Dagur Brynjarsson, Árni Benediktsson, Garðar Már Einarsson, Wihbet Goitom Haile, Ignat Igorsson, Kiril Igorsson, Leumuel Haile, Viktoria Sudnabina Arisimova og Maja I.
Næsta æfing verður mánudaginn 17. maí 2018 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjaval í Mjódd og salurinn er á þriðju hæð.