1.4.2014 kl. 02:58
Páskaeggjamót GM Hellis í Mjóddinni
Páskaeggjamót GM Hellis verður haldið í 22 sinn mánudaginn 7. apríl 2014, og hefst taflið kl. 17, þ.e. nokkru fyrr heldur en venjulegar mánudagsæfingar. Páskaeggjamótið kemur í stað mánudagsæfingar. Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Mótið er opið öllum krökkum á grunnskólaaldri.
Allir þátttakendur keppa í einum flokki en verðlaun verða veitt í tveimur aðskildum flokkum. Páskaegg verða í verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, bæði í eldri flokki (fæddir 1998 – 2001) og yngri flokki (fæddir 2002 og síðar). Sá sem er efstur í hverjum árgangi fær einnig páskaegg sem og efsta stúlkan á mótinu. Að auki verða tvö páskaegg dregin út. Enginn fær þó fleiri en eitt páskaegg.
Páskaeggjamótið verður haldið í félagsheimili GM Hellis að Álfabakka 14a í Mjóddinni. Inngangur er milli Subway og Fröken Júlíu við hliðina á Sparisjóði Reykjavíkur en salur félagsins er á þriðju hæð hússins.
