Pétur og Baldvin efstir á æfingu.

Pétur Gíslason og Baldvin Þ Jóhannesson urðu efstir og jafnir með 5 vinninga á skákæfingunni sem fram fór í gærkvöldi.  Tefldar voru 10 mín skákir í tvöfaldri umferð, því keppendur voru aðeins 4. Ármann Olgeirsson fékk 2 vinninga og Sigurbjörn Ásmundsson varð neðstur með engann vinning.

Vafalaust hefur leikur Íslands og Ungverjalands orðið til þess að færri mættu en venjulega.

Næsta skákæfing verður miðvikudagskvöldið 6 febrúar.  H.A.