Ádám Gulyás, Ævar Ákason og Rúnar Ísleifsson erum með 3 vinninga af 6 mögulegum á Reykjavík Open þegar þrjár umferðir eru eftir af mótinu. Í dag var tefld tvöföld umferð og Ævar átti góðan dag þegar hann vann báðar skákirnar sínar gegn talsvert stigahærri andstæðingum. Rúnar fékk einn og hálfan vinning í dag og Ádám gerði jafntefli í báðum sínum skákum gegn stigahærri andstæðingum.
Hermann Aðalsteinsson tapaði fyrri skákinni en vann þá síðari í dag og er með 2,5 vinninga. Hilmar Freyr Birgisson er með 1,5 vinninga og Sighvatur Karlsson er með hálfan vinning.
Öll úrslit má skoða á chess-results.
