Stærsta mót árins, Reykavík Open hefst í dag í Hörpu. 440 keppendur eru skráðir til leiks í mótinu og þar af eru 6 skákmenn frá Goðanum. Þetta eru þeir Rúnar Ísleifsson, Ádám Gulyás, Hermann Aðalsteinsson, Hilmar Freyr Bigisson, Ævar Ákason og Sighvatur Karlsson.
1. umferð hefst kl 15:00 í dag og verður mótinu gerð skil hér á vefnum eftir því sem fram vindur.
