10.10.2011 kl. 21:48
Rothögg Goðans geigaði en allt enn hægt !
Pistill um framgöngu A-sveitar Goðans á Íslandsmótinu:
Það iðaði allt af lífi og fjöri í
Rimaskóla helgina 7. -9 . okt. Spekingslegir riddarar og óþreyjufullir
fótgönguliðar þyrptust að tafli á föstudagskvöldinu í óvenjumiklu
hitakófi, unglingarnir prúðu hömuðust við veitingasöluna og húsvörðurinn
knái barðist sveittur við að laga loftræstinguna svo að menn féllu ekki
í valinn í eiginlegri merkingu. Mitt í öllum hamaganginum héldu Helgi
skólastjóri, Gunnar forseti og starfsmenn mótsins sinni stóísku ró og
horfðu vökulum augum yfir vígvöllinn. Skemmtilegasta skákmót landsins
var hafið enn á ný.

Gutti, lukkudýr Goðans, fékk ekki inngöngu á skákstað.
Hin
vörpulega A-sveit Goðans lagði allt í sölurnar til að tryggja sé
vænlega stöðu á toppnum í annarri deild. Sveitin fór fjarska vel af
stað með 5,5-0,5 sigri yfir vaskri B-sveit Hellis. Sigurgangan hélt
áfram á laugardeginum með 5,5-0,5 sigri yfir harðskeyttum Akurnesingum
og um kvöldið voru kapparnir knáu úr Reykjanesbæ lagðir með 5,0
vinningum gegn 1,0. Að þremur umferðum loknum var staðan því sú að
riddarar Hermanns formanns Aðalsteinssonar voru jafnir aðalkeppinautunum
í Víkingasveitinni-Þrótti – A með 16 vinninga. Ljóst að slagurinn á
sunnudeginum við vini okkar og erkifjendur, Víkingana, yrði afar harður.
Sigurður Daði Sigfússon fór fyrir A-sveitinni.
Viðureignin
við Víkingasveitina, styrkta með þremur erlendum meisturum og mun
stigahærri en sveit Goðans, sýndi vel styrk okkar. Hart var tekist á og
stöður almennt torráðnar nema hvað sjentilmennirnir Sigurður Daði
Sigfússon og stórmeistarinn Luis Galego sömdu snemma um jafnan hlut.
Nokkra athygli vakti að sá síðarnefndi féll í væran svefn fram á borðið
að skák lokinni. Voru áhorfendur ekki á eitt sáttir um hvort svefnhöfgi Portúgalans ætti sér upptök í svæsinni skákþreytu, bráðaofnæmi fyrir
íslenskum mat eða hvort bilunin í loftræstingunni leiddi til þess að
allt í einu hefðu skapast kjöraðstæður fyrir siestu. Sú gáta er
enn óleyst en hitt er víst að Galego hrökk þó að upp að lokum af værum
blundi og brá mjög í brún enda hélt hann að hann hefði sofið af sér
skákina. Portúgalska ljúfmennið tók þó fljótt gleði sína á ný þegar honum
var tjáð að hann hefði landað hálfum vinningi rétt fyrir blundinn,
minnugur hins fornkveðna að betri er blundur en blunder.
Ásgeir Páll Ásbjörnsson tefldi óaðfinnanlega um helgina.
Á
öðru borði mætti best geymda leyndarmál íslensks skáklífs, Ásgeir Páll
Ásbjörnsson, hinum öfluga alþjóðlega meistara Williem De-Jong. Skákin
var öll logandi í strategískum og taktískum álitamálum en eins og svo
oft áður sá Ásgeir dýpra og lengra en andstæðingurinn sem gafst upp í
vonlausri stöðu.
Kristján Eðvarðsson kom sterkur leiks en fann ekki réttu leiðina gegn Magnúsi Erni.
Á þriðja borði áttust þeir við kapparnir Kristján
Eðvarðsson og Magnús Örn Úlfarsson. Magnús Örn hafði betur í taktískum
skærum og vann vel útfærða skák sannfærandi að lokum. Að skák lokinni
kom þó í ljós að Kristján átti fína möguleika hefði hann nýtt tækifærin í
miðtaflinu.
Einar Hjalti Jensson mentor Goðans.
Á
fjórða borði tapaði Einar Hjalti mjög slysalega fyrir stórmeistara
kvenna, Biönku Mühren, í léttunnu hrósendatafli, eftir að hafa
yfirspilað hana með svörtu og unnið mannskap án mótspils. Einar lét
skákdrottinguna hollensku skáka af sér hrókinn en átti þó 12 mínútur
eftir á klukkunni á móti einni! Enn eitt dæmið um það þegar menn hugsa
svo marga leiki fram í tímann að sýndarstaða kemur upp í huganum í stað
hinnar raunverulegu.
Þröstur Árnason hefur engu gleymt.
Á
fimmta borði skemmtu Þröstur Árnason og Davíð Kjartansson áhorfendum
konunglega með magnaðri átakaskák og voru menn ekki á einu máli lengi
framan af hvor stæði betur. Svo fór þó að Þröstur náði afgerandi betri
stöðu í lok miðtafls og stóð til vinnings þegar hann lék af sér manni.
Staðan var þó enn svo góð hjá Þresti að hann hélt auðveldlega
jafntefli.
Hlíðar Þór Hreinsson tefldi í fyrsta skipti fyrir Goðann um helgina.
Á 6.
borði bárust friðsemdarmennirnir geðþekku, Hlíðar Þór Hreinsson og
Ólafur B. Þórsson á banaspjót í tvísýnni stöðu sem okkur
grunnhyggnum skákunnendum þótti skipta ótt og títt um eigendur. Í lokin
var það þó Hlíðar Þór sem átti vinningsmöguleikana með peðasverm á móti
biskupi en guðsmaðurinn reyndist jafnoki peðanna í krafti heppilegs
hörundslitar. Þá var ekki annað eftir en að takast í hendur og taka upp
léttara hjal.
Ástæða
er til að þakka Víkingunum fyrir skemmtilega og drengilega viðureign
enda ríkir sérstök háspennu-stemning þegar þessar öflugu sveitir læsa
saman skoltum. Ef ekki hefði komið til einskær óheppni Einars Hjalta í
kolunninni stöðu á móti Biönku Mühren, hefði Goðinn unnið verðskuldað
3,5 -2,5. Rothöggið geigaði að sönnu en eftir úrslit helgarinnar munar
þó aðeins einum vinningi á Goðum og Víkingunum, þannig að því fer fjarri
að úrslit í 2. deild 2011- 2012 séu ráðin.
Og eitt er víst: Lokaumferðirnar á Selfossi verða hreint magnaðar!
Jón Þorvaldsson, liðsstjóri A-liðs Goðans.
