31.3.2010 kl. 23:15
Rúnar efstur á æfingu.
Rúnar Ísleifsson varð efstur á skákæfingu kvöldsins sem fram fór á Stórutjörnum í kvöld. Rúnar fékk 5 vinninga af 6 mögulegum. Hann vann 4 skákir en gerði jafntefli við Ármann og Sigurð Ægisson frá Siglufirði, sem mætti galvaskur til leiks. Tefldar voru skákir með 10 mín umhugsunartíma á mann.
Úrslit kvöldsins:
1. Rúnar Ísleifsson 5 vinn af 6 mögulegum.
2-3. Ármann Olgeirsson 4,5
2-3. Sigurður Ægisson 4,5
4-6. Hermann Aðalsteinsson 2
4-6. Ketill Tryggvason 2
4-6. Jóhann Sigurðsson 2
7. Sigurbjörn Ásmundsson 1
Héraðsmót HSÞ í skák hefst á Laugum næsta miðvikudagskvöld kl 20:00 á Laugum, en þá verða 1-4 umferð tefld. Mótin verður síðan framhaldið á sama stað viku síðar.
Næsta skákæfing verður því ekki fyrr en 21 apríl. H.A.
