Sigurður Ægisson er genginn í Goðann !

Sigurður Ægisson frá Siglufirði er genginn í Goðann ! “Ég geri bara eins og hinir Siglfirðingarnir” sagði séra Sigurður þegar hann óskaði eftir inngöngu í Goðann. Eins og kunnugt er eru fjórir Siglfirðingar fyrir í Goðanum og bætist nú sá fimmti við með tilkomu Sigurðar í félagið.

sae 648916

                       Sigurður Ægisson.

“Þetta var í raun bara tímaspursmál hvenær ég færi að dæmi hinna” sagði séra Sigurður.

Séra Sigurður er þriðji presturinn sem er félagsmaður í Goðanum. Hinir eru séra Sighvatur Karlsson prestur á Húsavík og Þorgrímur Daníelsson prestur á Grenjaðarstað. Þess má til gamans geta að Sigurður var í eina tíð sóknarprestur á Grenjaðarstað og er því vel kunnugur á svæðinu. 

Hin heilaga þrenning ! Varð einum félagsmanni að orði þegar þetta spurðist út.