Rúnar efstur á hraðskákæfingu.

Rúnar Ísleifsson varð efstur á hraðskákæfingu hjá Goðanum í gærkvöldi. Hann fékk 12 vinningar af 14 mögulegum. Tefldar voru hraðskákir með 3 mín á mann + 2 sek á leik (Fischer rapid) og var þetta í fyrsta skipti sem þannig tímamörk eru notuð á æfingu hjá félaginu. 8 skákmenn mættu á æfinguna og var tefld tvöföld umferð.  Úrslit urðu eftirfarandi :

Rúnar Ísleifsson                12 af 14

Baldur Daníelsson             11

Þorgrímur Daníelsson        9

Sigurbjörn Ásmundsson     8

Ármann Olgeirsson            7

Hermann Aðalsteinsson     4

Jóhann Sigurðsson             3

Sighvatur Karlsson             2 

Næsta skákæfing verður 4 desember.