Sindri Snær og Baltasar efstir á æfingu

Sindri Snær Kristófersson sigraði í eldri flokki með fullu húsi 5v í fimm skákum og sýndi fram á það að sigurinn fyrir viku var engin tilviljun. Annar var Egill Úlfarsson með 4v en Egill hefur ekki áður verið í verðlaunasæti í eldri flokknum. Næstir með 3v voru Birgir Ívarsson, Axel Óli Sigurjónsson og Jóhannes Þór Árnason með 3v. Birgir var þeirra hæstur á stigum og hreppti þriðja sætið.  Baltasar Máni Wedholm og Alexander Már Bjarnþórsson voru efstir og jafnir með 5v í sex skákum í yngri flokki. Baltasar var hærri á stigum og hlaut því fyrsta sætið og Alexander annað sæti. Birgir Logi Steinþórsson og Sævar Breki Snorrason komu næstir með 4v. Þar þurfti því líka að grípa til stigaútreiknings og þá hafði Birgir Logi betur og hlaut hann þriðja sætið og sævar Breki það fjórða.

Þátttakendur að þessu sinni voru: Sindri Snær Kristófersson, Egill Úlfarsson, Birgir Ívarsson, Axel Óli Sigurjónsson, Jóhannes Þór Árnason, Ívar Andri Hannesson, Jón Otti Sigurjónsson, Brynjar Haraldsson, Stefán Orri Davíðsson, Alexander Jóhannsson, Baltasar Máni Wetholm, Alexander Már Bjarnþórsson, Birgir Logi Steinþórsson, Sævar Breki Snorrason, Arnar Jónsson, Gabríel Sær Bjarnþórsson, Aron Kristinn Jónsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Þórður Hólm Hálfdánarson og Róbert Andri Alvorado.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 17. mars nk. og hefst kl. 17.15 og verður þá einnig skipt í tvo flokka. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.