Sindri Snær og Brynjar efstir á æfingu hjá GM Helli

Á fyrstu æfingunni í mars var sett upp þemaskák í fyrstu tveimur viðureignunum. Um var að ræða stöðu úr slavanum. Þessar viðureigninr töldust með á sjálfri æfingunni. Pizzurnar komu þegar þessar umferðir voru að klárast. Eftir að þátttakendur voru búnir með pizzurnar var æfingin kláruð. Umhugsunartíminn var því í styttra lagi eða 7 mínútur og tefldar 5 umferðir eins og venjulega.

Sindri Snær Kristófersson sigraði í eldri flokki með 4,5v í fimm skákum og tryggði sigurinn með jafntefli við Heimi Pál í lokaumferðinni. Þetta er í fyrsta sinn sem Sindri Snær vinnur eldri flokkinn. en hann átti fyrir nokkra sigra í yngri flokknum. Annar varð Dawid Kolka með 4v og þriðji var svo Heimir Páll Ragnarsson með 3,5v. Brynjar Haraldsson og Baltasar Máni Wedholm voru efstir og jafnir með 4v jafn mörgum skákum í yngri flokki. Þeir voru einnig jafnir á stigum í fyrsta og öðrum stigaútreikningi. Brynjar hafði hins vegar betur í innbyrðis viðureign þeirra og hlaut því fyrsta sætið og Baltasar annað sæti. Það voru margir jafnir með 3v og eftir alla stigaútreikninga voru Stefán Orri Davíðsson og Jón Hreiðar Rúnarsson efstir og jafnir. Þá skar innbyrðis viðureign þeirra úr eins og í baráttunni um fyrsta sætið og þar hafði Stefán Orri betur og hlaut því þriðja sætið.

Þátttakendur að þessu sinni voru: Sindri Snær Kristófersson, Dawid Kolka, Heimir Páll Ragnarsson,  Axel Óli Sigurjónsson, Alec Elías Sigurðarson, Jón Otti Sigurjónsson, Halldór Atli Kristjánsson, Egill Úlfarsson, Oddur Þór Unnsteinsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Birgir Ívarsson, Ívar Andri Hannesson, Ólafur Tómas Ólafsson, Sebastian Piotr, Brynjar Haraldsson, Baltasar Máni Wetholm, Stefán Orri Davíðsson, Jón Hreiðar Rúnarsson, Alexander Már Bjarnþórsson, Gabríel Sær Bjarnþórsson, Sævar Breki Snorrason, Þórður Hólm Hálfdánarson, Arnar Jónsson, Aron Kristinn Jónsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon og Dron Karl Hancock.

Næsta æfing verður svo mánudaginn 10. mars nk. og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru haldnar í Álfabakka 14a í Mjóddinni, gengið inn á milli Subway og Föken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.