23.11.2009 kl. 20:34
Skákkennsla í Borgarhólsskóla.
Í október hófst skákkennsla í Borgarhólsskóla á Húsavík. Um er að ræða framhald á skákkennslu sem hófst fyrir rúmu ári síðan, en þá var Borgarhólsskóli styrktur ásamt 5 öðrum grunnskólum á landinu til skákkennslu úr verkefninu „Skák í skólanna“
Skákfélagið Goðinn sér um skákkennsluna í skólanum og er hún í umsjá Smára Sigurðssonar og Hermanns Aðalsteinssonar.

Kennt er einu sinni í viku og skipta þeir Smári og Hermann kennslunni á milli sín. Í vetur hafa 8-12 krakkar í skólanum notið kennslunnar, sem er nemendum að kostnaðarlausu.
