23.3.2011 kl. 16:04
Skákmót í Lautinni.
Tuttugu þátttakendur skráðu sig til leiks á hraðskákmóti í Laut, athvarfi fyrir fólk með geðraskanir á Akureyri, þar sem Rauði kross Íslands kemur m.a. að rekstrinum. Mótið var haldið kl. 17:30 í gær enda hafði Goðamaðurinn og prestur þeirra Húsvíkinga, Sighvatur Karlsson, boðað komu sína og efnilegra pilta um það leytið.
Lautargengið hafði fengið þá Smára Ólafsson frá Skákfélagi Akureyrar og Arnar Valgeirsson frá Skákfélagi Vinjar til samstarfs og úr varð stórskemmtilegt mót sem var öllum sem að því komu til háborinnar fyrirmyndar!
Hópur frá unglingaherdeild Skákfélags Akureyrar mætti og áhugamenn í Laut – sem ekki eru vanir klukkustressi – tóku alls ósmeykir þátt og stóðu sig frábærlega. Tefldar voru sex umferðir með

sjö mínútna umhugsunartíma.
Smári stjórnaði mótinu af mikilli fagmennsku. Fagmennskan réð einning ríkjum í eldhúsinu þar sem nýbakað – a la Helga og Fanney Dóra – var framborið í pásunni og orkuþörfinni svarað.
Skáksamband Íslands og Eymundsson á Akureyri sáu til þess að allir þátttakendur fengju vinninga.
Efstu menn:
- 6 v. Mikael Jóhann Karlsson
- 5. Jón Kristinn Þorgeirsson
- 4. Logi Jónsson
- 4. Hjörtur Snær Jónsson
- 4. Smári Ólafsson
- 3,5. Páll Jónsson, Arnar Valgeirsson og Snorri Hallgrímsson
- 3 v. Hlynur Viðarsson, Stefán Júlíusson og Valur Einarsson.
Frétt fengin af skák.is. Sjá meira hér: http://www.skak.blog.is/blog/skak/entry/1152856/
