Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri, Hermann Aðalsteinsson og Hilmar Freyr Birgisson. Mynd af vef Öxarfjarðaskóla
Á vef Öxarfjarðarskóla segir frá því að Skákfélagið Goðinn undir leiðsögn Hermanns og Hilmars hafa verið með skákkennslu í Öxarfjarðarskóla í vetur fyrir alla aldurshópa. Þeir hlutu til þess styrk frá Norðurþingi og hefur kennslan farið fram mánaðarlega síðan í september en nú fer að líða að lokum.
Í gær (10. mars) komu þeir færandi hendi og gáfu skólanum 10 skáksett sem við erum afskaplega þakklát fyrir.
Hér má sjá nokkra af skákmönnum framtíðarinnar sem hafa verið áhugasamir í vetur.
Skákfélagið hafði áður fært Borgarhólsskóla á Húsavík alveg eins gjöf sl. haust.
