20. starfsár skákfélagsins Goðans hefst með formlegum hætti mánudagskvöldið 26. ágúst í Framsýnarsalnum á Húsavík. Skákæfing hefst kl 19:00 og að henni lokinni verður haldinn félagsfundur, á sama stað sem hefst kl 21:00, um skákstarfið framundan. Þar ber hæst Íslandsmót skákfélaga 4-6 október og afmælismót Goðans í mars 2025.

Mjög æskilegt er að sem flestir sjái sér fært að mæta amk. á félagsfundinn ef menn hafa ekki tök á hvoru tveggja.

Skráningar linkur á skákæfinguna.