20.10.2007 kl. 21:36
Skákstig félagsmanna.
1 október var birtur nýr skákstigalisti FIDE. Á þeim lista á Goðinn 2 skákmenn, Tómas Veigar og Jakob Sævar og er Jakob nýr inn á listann. Reyndar ættu þeir að vera 3 því Pétur Gíslason hafði FIDE stig á meðan hann bjó í Svíþjóð. Ekki veit ég hvað orðið hefur um hans stig.
Alls hafa 11 félagar í Goðanum skákstig af einverju tagi. Og þeir eru eftirtaldir:
Nafn Íslensk stig 1 sept atskák stig 1 jún FIDE 1 okt
Tómas Veigar Sigurðarson 1885 1850 2078
Pétur Gíslason 1715 1720
Rúnar Ísleifsson 1680 1710
Baldur Daníelsson 1655
Einar Garðar Hjaltason 1655 1620
Smári Sigurðsson 1655
Jakob Sævar Sigurðsson 1645 1837
Heimir Bessason 1590
Baldvin Þ Jóhannesson 1445 1490
Ármann Olgeirsson 1330
Orri Freyr Oddsson 1845
Aðrir Þingeyingar sem hafa stig en eru ekki í neinu skákfélagi eru :
Sigurjón Benediktsson 1520
Sighvatur Karlsson 1300
Síðan eru nokkrir félagsmenn skammt frá því að fá sín fyrstu skákstig. Tómas, Smári og Jakob eru á góðri siglingu upp listann en minni breytingar eru hjá öðrum.