Rúnar Ísleifsson. Mynd: David Llada
Rúnar Ísleifsson tapaði fyrir FM Símoni Þórhallssyni í lokaumferð Skákþings Akureyrar sem fram fór í gær. Þetta var fyrsta tapskák Rúnars í mótinu en hann var búinn að gera tvö sterk jafntefli gegn FM Jóni Kristni Þórhallssyni og IM Áskeli Erni Kárasyni fyrr í mótinu.
Rúnar fékk 4 vinninga af 7 mögulegum í mótinu, en FM Símon Þórhallsson vann mótið með 6 vinningum.
