Smári Sigurðsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór sl. mánudagskvöld í Framsýnarsalnum. Smári fékk 7, 5 vinninga af 8 mögulegum. Rúnar Ísleifsson og Benedikt Þór Jóhannsson komu næstir með 6 vinninga. 9 keppendur mættur til leiks og tefldu allir við alla með 7 mín umhugsunartíma á mann.
Lokastaðan.
Smári Sigurðsson 7,5
Rúnar Ísleifsson 6
Benedikt Þór Jóhannsson 6
Adam Gulyas 4
Kristján Ingi Smárason 4
Hermann Aðalsteinsson, Ingimar Ingimarsson, Sigurbjörn Ásmundsson og Þorgrímur Sigmundsson fengu færri vinninga.
Íslandsmót skákfélaga fer fram dagana 4-6 október í Rimaskóla. Ekki liggur fyrir hvar eða hvenær næsta æfing fer fram.