Smári Sigurðsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík í gærkvöld. Smári fékk 5,5 vinninga af 6 mögulegum. Rúnar Ísleifsson varð annar með 5 vinninga og Sigurbjörn Ásmundsson þriðji með 4,5 vinninga. Tefldar voru 6 umferðir eftir monrad-kerfi með 10 mín umhugsunartíma á mann.
1. Smári Sigurðsson 5,5 af 6
2. Rúnar Ísleifsson 5
3. Sigurgjörn Ásmundsson 4,5
4. Hlynur Snær Viðarsson 3,5
5. Heimir Bessason 3,5
6. Sam Rees 3
7. Ævar Ákason 2
8. Hermann Aðalsteinsson 2
9. Guðmundur Hólmgeirsson 1
10. Heiðar Kristjánsson 0
Næsta skákæfing verður á Húsavík að viku liðinni.