Frá æfingunni í gærkvöld
Smári Sigurðsson varð efstur á skákæfingu sem fram fór á Húsavík í gærkvöld. Smári fékk 4,5 vinninga af 5 mögulegum. Hilmar Freyr Birgisson varð annar með 4 vinninga og Kristján Ingi Smárason þriðji með 3,5 vinninga.
Lokastaðan.
Tímamörk voru 7+3 og teflar voru 5 umferðir. Einn nýliði, Szymon Stolarz frá Póllandi, mætti á æfinguna og var nálægt því að landa sínum fyrsta vinning.
Næsta skákæfing verður nk. mánudagskvöld kl 20:00 í Túni.

