Smári Sigurðsson Mynd Hallfríður Sigurðardóttir
Smári Sigurðsson varð efstur með fullu húsi á skákæfingu sem fram fór í gærkvöldi í Túni. Kristján Ingi Smárason varð annar með 3,5 vinninga og Ádám Gulyás þriðji með 3 vinninga. Alls tóku 6 keppendur þátt í æfingunni og tefldar voru hraðskákir með 5 mín umhugsunartíma.
Skákþing Goðans fer fram um komandi helgi 20-22 febrúar og því verður ekki skákæfing 23. febrúar.
Lokastaðan
