Smári hraðskákmeistari Goðans-Máta 2012

Smári Sigurðsson varð í kvöld hraðskákmeistari Goðans-Máta með öruggum hætti þegar hann vann alla sína andstæðinga 8 að tölu. Jakob Sævar Sigurðsson varð annar með 7 vinninga og Heimir Bessason varð í þriðja sæti með 5 vinninga. Hlynur Snær Viðarsson vann sigur í yngri flokki með 5 vinninga, Jón Aðalsteinn Hermannsson varð í öðru sæti með 2 vinninga og Bjarni Jón Kristjánsson, sem einnig fékk tvo vinninga, varð í þriðja sæti örlítið lægri á stigum en Jón.

Des 2012 001 (640x480)
 

Heimir, Jón Aðalsteinn, Smári, Bjarni, Jakob og Hlynur.

Lokastaðan:

1.    Smári Sigurðsson                    8  af 8
2.    Jakob Sævar Sigurðsson          7
3-4. Heimir Bessason                     5
3-4. Hlynur Snær Viðarsson            5
5.    Hermann Aðalsteinsson           3
6-8. Ævar Ákason                           2
6-8. Jón Aðalsteinn Hermannsson  2
6-8. Bjarni Jón Kristjánsson            2
9.    Sighvatur Karlsson                  1