21.3.2012 kl. 10:47
Snorri efstu á æfingu.
Snorri Hallgrímsson varð efstur á skákæfingu sl. mánudagskvöld þegar hann gerði sér lítið fyrir og vann alla sína andstæðinga. Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann.

Úrslit kvöldsins:
1. Snorri Hallgrímsson 5 af 5
2. Hermann Aðalsteinsson 4
3. Sigurjón Benediktsson 3
4. Sigurbjörn Ásmundsson 2
5. Ævar Ákason 1
6. Hlynur Snær Viðarsson 0
Næsta skákæfing verður nk. mánudagskvöld á Húsavík.
