1.5.2012 kl. 21:05
Snorri efstur á æfingu. Smári æfingameistari Goðans 2012
Snorri Hallgrímsson varð efstur á síðustu skákæfingu vetrarins hjá Goðanum í gærkvöld. Snorri fékk 4 vinninga af 5 mögulegum. Tefldar voru skákir með 15 mín umhugsunartíma á mann.
Úrslit gærkvöldsins:
1. Snorri Hallgrímsson 4 af 5
2. Ævar Ákason 3,5
3. Smári Sigurðsson 3
4. Sigurbjörn Ásmundsson 2
5. Hermann Aðalsteinsson 1,5
6. Hlynur Snær Viðarsson 1
Skákæfingar Goðans hefjast aftur í september.
Smári Sigurðsson fékk afhentan æfingabikar Goðans að lokinni skákæfingunni í gærkvöld því hann var með flesta samanlagða vinninga eftir skákæfingar vetrarins, alls 74.
Smári er því æfingameistari Goðans árið 2012.
Úrslitin í samanlögðu:
Smári Sigurðsson 74
Hermann Aðalsteinsson 67
Snorri Hallgrímsson 59
Ævar Ákason 58
Sigurbjörn Ásmundsson 51,5
Heimir Bessason 36
Hlynur Snær Viðarsson 34
Sighvatur Karlsson 17
Sigurgeir Stefánsson 16
Orri Freyr Oddsson 10
Stephen Jablon 9
Sigurjón Benediktsson 8
Benedikt Þór Jóhannsson 6
Júlíus Bessason 6
Árni Garðar Helgason 6,5
Valur Heiðar Einarsson 4,5
Viðar Njáll Hákonarson 1,5