19.1.2014 kl. 17:20
Stelpuæfingar GM Hellis í Mjóddinni byrja miðvikudaginn 22. janúar nk.

Skákfélagið GM Hellir byrjar með sérstakar stúlknaæfingar miðvikudaginn 22. janúar 2014. Taflið byrjar kl. 17:15 og fyrirkomulagið þannig á æfingunum verða 5 eða 6 umferðir með umhugsunartíma 10 eða 7 mínútur. Einnig verður farið í dæmi og endatöfl eins og tími vinnst til. Æfingarnar eru opnar öllum stelpum15 ára og yngri en ef ástæða er til verður skipt í tvo flokka eftir aldri og styrkleika á sumum æfingum. Engin þátttökugjöld.
Æfingarnar verða haldnar í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a, Mjódd. Inngangur er við hliðina á Subway en salur félagsins er á þriðju hæð hússins. Umsjón með æfingunum hafa Elsa María Kristínardóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir.
