20.11.2013 kl. 16:32
Taflfélag Reykjavíkur Íslandsmeistari unglingasveita GM-Hellir í öðru sæti
Taflfélag Reykjavíkur eiginlega kom, sá og sigraði í mótinu þar sem þeir komu með alls 6 lið þar sem 5 af þessum 6 liðum lentu efst í sínum flokki, auk þess að verða íslandsmeistarar 2013, sem er fyrsti titill TR eftir nokkurt hlé.
Fjölnismenn voru reyndar í báráttunni alveg fram að síðustu umferðum mótsins þegar lið GM Hellis skaust hálfan vinning upp fyrir.
Lið Íslandsmeistara TR A var skipað þeim Vignir Vatnar Stefánssyni 6 af 7, Gauta Páli Jónssyni 6,5 af 7, Veroniku Magnúsdóttur 5 af 7 og Birni Hólm Birkissyni 6 af 7 eða alls 23,5 vinningur. sem er glæsilegur árangur.
Lið GM Helllis A sem endaði í 2. sæti var skipað Hilmi Frey Heimissyni, Dawid Kolka, Felix Steinþórssyni og Heimi Páli Ragnarssyni.
Lið Fjölnis A sem voru meistarar í fyrra með fullu húsi var skipað þeim Óliver Aron Jóhannessyni sem var besti maður mótsins og vann allar skákirnar á fyrsta borði. Nansý Davíðsdóttir, Jóhanni Arnari Finnssyni og Hilmi Hrafnssyni. Lið Fjölnis missti 2 gríðarsterka skákmenn vegna aldurs upp úr liðinu og náðu þeir ekki að fylgja frábærum árangri síðan í fyrra eftir.
B lið TR var svo mjög gott líka en þar á eftir komu lið GM Hellis B, TG A og Hauka og Fjölnis B öll með svipaðan árangur. GM Hellir B varð sjónarmun á undan TG á 2 stigaútreikningi.
Tveir liðsmanna GM Hellis náðu sér í borðaverðlaun á mótinu en það voru Dawid Kolka sem fékk 6,5v af 7 á 2. borði fyrir GM Helli A og Birgir Ívarsson sem fékk 6v á 4. borði fyrir GM Helli B.
Lokastaða
| Rank | Team | Gam. | + | = | – | Pts. | MP |
| 1 | TR A | 7 | 6 | 1 | 0 | 23½ | 13 |
| 2 | GM Hellir A | 7 | 4 | 1 | 2 | 21 | 9 |
| 3 | Fjölnir A | 7 | 5 | 2 | 0 | 20½ | 12 |
| 4 | TR B | 7 | 4 | 2 | 1 | 19½ | 10 |
| 5 | GM Hellir B | 7 | 3 | 1 | 3 | 15½ | 7 |
| 6 | Taflfélag Garðabæjar A | 7 | 3 | 1 | 3 | 15½ | 7 |
| 7 | Haukar | 7 | 4 | 0 | 3 | 15 | 8 |
| 8 | Fjölnir B | 7 | 3 | 1 | 3 | 15 | 7 |
| 9 | GM Hellir C | 7 | 3 | 1 | 3 | 13 | 7 |
| 10 | TR D | 7 | 3 | 0 | 4 | 12½ | 6 |
| 11 | TR C | 7 | 3 | 0 | 4 | 11½ | 6 |
| 12 | Fjölnir C | 7 | 3 | 0 | 4 | 11½ | 6 |
| 13 | GM Hellir D | 7 | 3 | 0 | 4 | 11 | 6 |
| 14 | TR E | 7 | 2 | 1 | 4 | 9½ | 5 |
| 15 | Taflfélag Garðabæjar B | 7 | 1 | 1 | 5 | 6½ | 3 |
| 16 | TR F | 7 | 0 | 0 | 7 | 3 | 0 |
TR A varð því Íslandsmeistari.
GM Hellir C vann keppni C liða.
