Skákæfing á Tornelo.com fór fram í gærkvöldi. Aðeins 4 mættu til leiks og enduðu þrir þeirra efstir jafnir með tvo vinninga. Það voru þeir Smári Sigurðsson, Rúnar Ísleifsson og Kristján Ingi Smárason. Formaðurinn Goðans endaði neðstur með glæsibrag og engan vinning. Tefld var einföld umferð, allir við alla og tímamörk voru 10 mín sléttar.

Lokastaðan á Tornelo.

Næsta skákæfing verður í Famsýnarsalnum mánudagskvöldið 30. sept kl 20:00. Tekinn verður stuttur spjallfundur að lokinni æfingu vegna komandi deildarkeppni.