20.2.2013 kl. 16:49
Tímaritið Skák er komið út !
Tímaritið Skák er komið út. Áskrifendur, sem hafa þegar greitt fyrir áskrift, geta nálgast það í Hörpu í dag og á morgun þar sem það verður einnig selt í lausasölu.
Blaðið verður sent í pósti þeim áskrifendum sem svo kjósa og hafa og þeim sem ekki sækja það í Hörpu.
Hér er um ársrit að ræða – yfirlit yfir skákárið 2012-2013. Skyldulesning allra er láta sig íslenskt skáklíf einhverju varða.
Í blaðinu kennir ýmissa grasa og víða verður drepið niður fæti. Þar má m.a. finna:
- Viðtal við Friðrik Ólafsson
- Arabískt mát
- Jóhann Hjartarson fimmtugur
- Skákþing Íslands
- Ólympíumótið í Istanbúl
- Skákmaður ársins
- Og margt fleira.
Enn er hægt að skrá sig fyrir áskrift með því að smella hér
Goðum líkir Mátar bjóða lesendum í tímaferðalag með greinarhöfundum um íslenskar skáklendur síðasta árs. Þar verður áð við helstu vörðurnar og hlaupið upp á fell og skimað yfir skáklífið.


