Felix Steinþórsson

Västerås Open hefst í Svíþjóð í dag. Mótið er mjög fjölmennt en yfir 350 skákmenn eru skráðir til leiks. Mótið er 8 umferða og fyrstu fjórar umferðirnar eru með tímamörkunum 15 mín+ 5 sek/leik, en umferðir 5-8 erum með 90 mín+30 sek/leik

Felix Steinþórsson
Felix Steinþórsson

Huginsfélaginn Felix Steinþórsson tekur þátt í mótinu en 12 aðrir Íslenskir skákmenn, flestir frá skákdeild Fjölnis, taka þátt í því. Steinþór Baldursson er einn af skákstjórum mótsins.

Fylgst verður með gangi mála hér á skákhuginn.is.

Mótið á Chess-results