29.10.2013 kl. 12:13
Vignir Vatnar efstur eftir fyrri hlutann á Unglingameistaramóti GM Hellis
Vignir Vatnar Stefánsson er efstur með 3,5v að loknum fjórum umferðum á Unglingameistaramóti GM Hellis (suðursvæði). Jöfn í 2-7 sæti með 3v eru Hilmir Freyr Heimisson, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Dawid Kolka, Mikhael Kravchuk, Oddur Þór Unnsteinsson og Halldór Atli Kristjánsson. Það stefnir því í harða baráttu um efstu sætin og titilinn unglingameistari GM Hellis. Þátttakendur á mótinu eru 21.
Síðustu 3. umferðirnar eru tefldar á morgun þriðjudaginn 29. október og hefst seinni hlutinn kl. 16.30. Þá er von á góðum gesti í heimsókn en Hjörvar Steinn Grétarsson mun þá heilsa upp á keppendur. Hjörvar náði nýlega síðasta áfanganum að stórmeistartitili og það hefur enginn orðið oftar unglingameistari Hellis. Þau voru 5 skiptin sem Hjörvar vann titilinn og oftast var hann einnig í 1. sæti mótinu sjálfu.
Staða efstu manna eftir fyrri hlutann:
1. Vignir Vatnar Stefánsson 3,5v/4
2. Hilmir Freyr Heimisson 3v
3. Veroníka Steinunn Magnúsdóttir 3v
4. Dawid Kolka 3v
5. Mikhael Kravchuk 3v
6. Oddur Þór Unnsteinsson 3v
7. Halldór Atli Kristjánsson 3v
8. Heimir Páll Ragnarsson 2,5v
Í 5. umferð mætast eftirtaldir skákmenn:
1. Vignir Vatnar – Dawid
2. Veronika – Hilmir Freyr
3. Mikhael – Oddur Þór
4. Halldór Atli – Heimir Páll
5. Óskar Víkingur – Stefán Orri
6. Róbert Luu – Alec Elías
7. Sindri Snær – Brynjar
8. Birgir – Ívar Andri
9. Óttar – Kristófer Eggert
10. Egill – Kristófer Jökull
11. Adam – Skotta
