Tómas Veigar Sigurðarson
Hið árlega 15 mín skákmót Hugins á Húsavík verður haldið föstudagskvöldið 21. október í Framsýnarsalnum Garðarsbraut 26 á Húsavík og hefst mótið kl 20:00. Áætluð mótslok eru um kl 23:00. Tefldar verða 7 umferðir eftir sviss-manager kerfi og verður umhugsunartíminn 15 mín, eins og gefur að skilja. Umferðafjöldinn fer þó eftir fjölda keppenda. Mótið verður reiknað til Fide-atskákstiga.

Teflt verður í einum flokki en verðlaun veitt fyrir 3 efstu í fullorðinsflokki og flokki 16 ára og yngri. Veittur verður farandbikar fyrir sigurvegarann í báðum flokkum.
Þátttökugjald er kr 500 á alla keppendur.
Tómas Veigar Sigurðarson vann mótið 2014 og 2015 mun hann örugglega reyna að verja þann tiltil á föstudag. Takist honum það vinnur hann verðlaunabikarinn til eignar.
Hermann tekur við skráningum í síma 4643187 og 8213187 og einnig á lyngbrekku@simnet.is
