Óskar Víkingur Davíðsson vann eldri flokkinn og Zofia Momuntjuk yngri flokkinn á Huginsæfing sem haldin var 17. október sl. Baráttan var mjög jöfn í eldri flokknum en þar voru Óskar, Stefán Orri Davíðsson og Batel Goitom Haile öll jöfn með 4v af sex mögulegum en þau skipust á að vinna hvort annað, Óskar og Stefán Orri voru jafnir á stigum með 14 stig í fyrsta útreikingi og 16,5 stig í öðrum útreikningi. Óskar vann hins vegar innbyrðis viðureign þeirra og fékk því fyrsta sætið en Stefán Orri var annar. Batel kom svo fast á hæla þeirra með 13,5 stig. Dæmið á æfingunni vafðist nokkuð fyrir þátttakendum enda í þyngri kantinum og krafðist töluverðra útreikninga. Það leystu aðeins þrír rétt en það voru Brynjar Haraldsson, Elfar Ingi Þorsteinsson og Óttar Örn Bergmann Sigfússon. Dæmið hafði því ekki áhrif á úrslit æfingarinnar. Eins og áður voru gefnir voru fimm möguleikar og átti að merkja við img_2944þann rétta.

Í yngri flokki voru þrír efstir og jafnir en en það voru auk Zofiu þeir Sigurður Rúnar Gunnarsson og Andri Hrannar Elvarsson. Zofia var efst að stigum með 11,5 stig og hlaut fysta sætið. Sigurður Rúnar var annar með 10,5 stig en Sigurður Rúnar vann í lokaumferðinni sigurvegara flokksins á siðustu æfingu Einar Dag Brynjarsson í spennandi skák, undir vökulum augum feðra sinna og sendi Einar Dag þar með úr verðlaunasæti og tók þar sæti sjálfur. Andri Hrannar var svo þriðji með 10 stig.
Í æfingunni tóku þátt: Óskar Víkingur Davíðsson, Stefán Orri Davíðsson, Batel Goitom Haile, Elfar Ingi Þorsteinsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Einar Tryggvi Petersen, Brynjar Haraldsson, Rayan Sharifa, Daníel Guðjónsson, Zofia Momuntjuk, Sigurður Rúnar Gunnarsson, Andri Hrannar Elvarsson, Einar Dagur Brynjarsson, Gunnar Freyr Valsson, Brynjólfur Jan Brynjólfsson, Bergþóra Helga Gunnarsdóttir, Bjartur  Freyr Jörgensen Heider, Wiktoria Momuntjuk, Witbet Haile, Emil Sær Birgisson og Anton Jónsson.

Næsta æfing verður mánudaginn 24. október 2016 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.

Dæmið á æfingunni:

Svartur á leik. Hvítur er búinn að fórna tveimur peðum fyrir hraða liðsskipan. Svartur hefur látið d-peðið í staðinn og spurning er hvernig hann eigi að bregðast við þrýstingi hvíts.

A. Skipa liðin fljótt út. 1. ….Rf6 til að græða leik með því að setja á hvítreita biskup svarts.
B. Hvassast er að leika 1…..Bc5 og stefna á veikleikann á f2. Næst fer riddarinn út og svo er hrókað og svartur er peði yfir.
C. Þar sem svartur er peði yfir er gott að leika 1. ….c6. Eftir að biskupinn fer getur svartur skipt upp á drottningum og staðan er vænleg í endataflinu.
D. Það lítur vel út að leika 1. ….Bb4+ en ennþá betra er hinn öruggi 1….Be7. Ef hvítur svarar með 2. Bxg7 þá tryggir 2….Bf6 að svartur tapar ekki skiptamun.
E. Hvítur er með mikla taktíska fléttu á prjónunum og eina skynsamlega leiðin til að forðast hana er 1…..Dg5

Rétt svar er A sem er eina fullnægjandi lausnin við hótun hvíts að fórna biskupnum á f7. Svartur verður einfaldlega of langt á eftir í liðsskipan með Dg5 og Be7í lið c. kemur vissulega í veg fyrir skiptamunstap, en eftir mikil uppskipti þar sem allt er drepið sem hægt er að drepa, þá hreinsar hvítur upp svörtu peðin á kóngsvæng og verður tveimur peðum yfir í endataflinu.