28.4.2011 kl. 10:48
3,5 vinninga af 4 mögulegum í hús á Öðlingamótinu.
Okkar menn áttu góðan dag í gær þegar 3,5 vinningar komu í hús af fjórum mögulegum á Öðlingamótinu.
Jón Þorvaldsson sýndi styrk sinn í gærkvöld og er í efsta sæti með 4 vinninga ásamt þremur öðrum.
Jón Þorvaldsson (2045) vann Bjarna Hjartarson (2045) í glæsilegri fórnarskák. Páll Ágúst Jónsson gerði jafntefli við Jóhann Ragnarsson (2089). Björn þorsteinsson vann Þór Valtýsson (2043) og Sigurður Jón Gunnarsson vann Sigurð H Jónsson (1860).
Jón Þorvaldsson er efstur með fjóra vinninga ásamt þremur öðrum skákmönnum. Björn Þorsteinsson er svo í 5. sæti með 3,5 vinninga, Páll Ágúst er einnig með 3,5 vinninga í 9. sæti og Sigurður Jón er með 3 vinninga í 19 sæti.
Athygli vekur góð frammistaða Jóns og þá sérstaklega Páls Ágústs, en þeir félagar eru báðir taplausir á mótinu.
Páll Ágúst Jónsson hefur staðið sig glæsilega á mótinu.
Staða efstu manna:
| Rk. | Name | Rtg | Pts. | TB1 | |
| 1 | FM | Thorsteinsson Thorsteinn | 2220 | 4 | 16,5 |
| 2 | Gudmundsson Kristjan | 2275 | 4 | 15,5 | |
| 3 | Gunnarsson Gunnar K | 2221 | 4 | 14 | |
| 4 | Thorvaldsson Jon | 2045 | 4 | 13 | |
| 5 | Thorsteinsson Bjorn | 2213 | 3,5 | 16 | |
| 6 | Halldorsson Bragi | 2194 | 3,5 | 15 | |
| 7 | Ragnarsson Johann | 2089 | 3,5 | 14,5 | |
| 8 | Thorhallsson Gylfi | 2200 | 3,5 | 14 | |
| 9 | Jonsson Pall Agust | 1895 | 3,5 | 13,5 | |
| 10 | Sigurdsson Pall | 1929 | 3,5 | 11,5 | |
| 11 | Hjartarson Bjarni | 2078 | 3 | 15 | |
| 12 | Valtysson Thor | 2043 | 3 | 15 | |
| 13 | Palsson Halldor | 1966 | 3 | 14,5 | |
| 14 | Isolfsson Eggert | 1830 | 3 | 13 | |
| 15 | Loftsson Hrafn | 2220 | 3 | 12 | |
| 16 | Gardarsson Halldor | 1945 | 3 | 11,5 | |
| 17 | Eliasson Kristjan Orn | 1947 | 3 | 10 | |
| 18 | Jonsson Olafur Gisli | 1842 | 3 | 9,5 | |
| 19 | Gunnarsson Sigurdur Jon | 1825 | 3 | 9 |

Björn Þorsteinsson vann í gær og er í 5. sæti með 3,5 vinninga.
Sigurður Jón Gunnarsson er með 3 vinninga í 19. sæti af 40.
Ekki liggur fyrir pörun í sjöttu og næst síðustu umferð sem fram fer næsta miðvikudagskvöld.
Mótið á chess-results
