Ný kennimerki Hugins

Skákfélagið Huginn hefur eignast kennimark (logo) sem verður framvegis kjarni sjónrænna auðkenna félagsins.

Kennimarkið speglar metnaðarfullt félagsstarf og þau eilífu átök sem eiga sér stað á skákborðinu, auk þess að vísa til þeirrar blöndu af baráttuanda, herkænsku og háttvísi sem félagið vill hafa í öndvegi. Enn fremur talar nafnið Huginn sínu máli um hugvit og hugrekki sem prýða má sérhvern iðkanda göfugrar íþróttar.

logo_huginn_oll
Logo Hugins

Nýja kennimarkið er í senn nútímalegt og sígilt. Það kallast á við skjaldarmerki konunga og drottninga sem er vel við hæfi þegar skák er annars vegar. Merkið skírskotar jafnt til beggja kynja enda er ekki nokkur leið að skera úr um hvort mannveran í hertygjunum er karl í anda riddarasagna miðaalda eða kvenhetja á borð við Jóhönnu af Örk.

Höfundur kennimarksins er Kristján E, Karlsson, grafískur hönnuður.