Ný kennimerki Hugins

Ágætu konur og menn Skákfélagsins Hugins. Aðalfundur félagsins verður haldinn 25. september næstkomandi í húsakynnum Sensa við Ármúla 31 Reykjavík.

Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.

Á aðalfundinum verður fjallað um eftirfarandi liði:

(1) Kosinn fundarstjóri og fundarritari.
(2) Flutt skýrsla stjórnar.
(3) Lagðir fram reikningar félagsins sem ná yfir síðastliðið almanaksár.
(4) Umræður um störf stjórnar og afgreiðsla reikninga.
(5) Kosning formanns og varaformanns.
(6) Kosning stjórnar
(7) Kosnir tveir endurskoðendur að reikningum félagsins.
(8) Formleg inntaka nýrra félagsmanna
(9) Félagsgjöld ákvörðuð.
(10) Lagabreytingatillögur sem séu löglega boðaðar
(11) Önnur mál.

Með skák-kveðju

Stjórn Hugins