11.1.2012 kl. 10:27
Ævar efstur eftir tvær umferðir.
Ævar Ákason vann fyrstu tvær skákirnar á skákæfinga-röð sem hófst á mánudsgskvöldið. Tímamörkin voru 30 mín á mann og verða tefldar tvær umferðir á næstu þremur skákæfingum.
Staðan eftir 2 umferðir.
1. Ævar Ákason 2 vinninga af 2 mögul.
2-3. Smári Sigurðsson 1,5
2-3. Snorri Hallgrímsson 1,5
Aðrir minna.
Alls taka 10 skákmenn þátt í æfinga-röðinni, sem verður framhaldið nk. mánudag á Húsavík.