Allar sveitir Goðans unnu í 1. umferð

Allar skáksveitir Goðans unnu í fyrstu umferð á Íslandsmóti skákfélaga í gærkvöld.

C sveitin vann C sveit Fjölnis 3,5 – 2,5. Valur og Snorri unnu sínar skákir, Hlynur, Bjössi og Sighvatur gerðu jafntefli, en Hermann tapaði.

B sveitin vann SSON B 4,5 – 1,5. Páll, Jakob, Smári og Benedikt unnu, Baldur gerði jafntefli, en Stephen tapaði. 

A sveitin vann stóran sigur á B sveit Hellis 5,5  -0,5. Björn, Tómas, Þröstur, Kristján og Sigurður Daði unnu sínar skákir og Einar Hjalti gerði jafntefli.

Chess-results. 2. deild
http://chess-results.com/tnr57496.aspx?art=0&lan=1&flag=30

4. deild
http://chess-results.com/tnr57498.aspx?art=2&rd=2&lan=1&flag=30

Svo skemmtlega vill til að B-sveit Goðans mætir C-sveitinni í 2. umferð í dag.