Ármann, Áslkell

Áskell Örn Kárason UFA vann öruggan sigur í skák á Landsmóti 50+ sem fram fór á Húsavík í dag. Áskell vann allar sínar skákir þrjár að tölu. Jón Arnljótsson UMSS varð annar með 1,5 vinninga, Ólafur Ásgrímsson ÍBR þriðji með 1 vinning og Ámann Olgeirsson HSÞ fjórði með 0,5 vinninga.

Tefldar voru atskákir með 25 mín. umhugsunartíma á mann. Mótið fór fram í Borgarhólsskóla á Húsavík og var Hermann Aðalsteinsson skákstjóri.

Jón og Áskell
Jón og Áskell
Ármann og Ólafur
Ármann og Ólafur