Næsta skákkvöld Hugins í Mjóddinni verður atkvöld mánudaginn 5. nóvember 2018 og hefst mótið kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hraðskákir þar sem hvor keppandi hefur 3 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik. Síðan verða þrjár atskákir með umhugsunartímanum tíu mínútur + 5 sekúndur á hvern leik.. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Mótið verður reiknað til hraðskák- og atskákstiga.

Sigurvegarinn á atkvöldinu fær í verðlaun máltíð fyrir einn á Saffran eða pizzu frá Dominos. Einnig verður dreginn út af handahófi annar keppandi sem fær sama val. Þar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Þátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir aðra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).