Baldur Daníelsson varð í dag fyrsti skákmeistari Skákfélagsins Goðans er hann vann sigur á fyrsta Skákþingi félagsins sem lauk á Fosshóli í kvöld. Baldur fékk 6,5 vinninga af 7 mögulegum. Ármann Olgeirsson varð í öðru sæti með 5,5 vinninga og Jóhann Sigurðsson þriðji með 5 vinninga. 8 keppendur tóku þátt og voru tímamörkin 20 mín á mann en mótið fór fram á tveimur kvöldum. Mótið markaði lok vetrastarfsins þennan veturinn.
Fyrsta skákþing Goðans 25-26 apríl 2004 á Fosshóli.
1. Baldur Daníelsson 6,5 vinn (af 7mögulegum)
2. Ármann Olgeirsson 5,5
3. Jóhann Sigurðsson 5
4. Jón Sigurjónsson 3
5. Hermann Aðalsteinsson 3
6. Hallur Birkir Reynisson 2
7. Helgi Ingason 2
8. Hólmfríður Eiríksdóttir 1