Birgir Logi Steinþórsson sigraði með fullu húsi á æfingu sem haldin var þann 11. desember sl. Birgir Logi fékk 5v í jafn mörgum skákum og svei mér þá ef þetta er ekki bara í fyrsta sinn sem Birgir Logi vinnur þessar æfingar. Engu dæmi þurfti að skila á þessari æfingu en í staðinn skoðuðu þátttakendur saman tvö dæmi um leppanir. Í öðru sæti var Óttar Örn Bergmann Sigfússon með 4v. Síðan komu þrír keppendur með 3v en það voru Rayan Sharifa, Einar Dagur Brynjarsson og Árni Benediktsson. Þarna var Rayan fremstur á stigum og hlaut þriðja sætið.

 

20171211_185036Veitt voru sérstök stúlknaverðlaun á æfingunni og þar varð Bergþóra Helga Gunnarsdóttir fyrst, Wiktoria Momuntjuk önnur og Gabriella Veitonite þriðja.

Í æfingunni tóku þátt: Birgir Logi Steinþórsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Rayan Sharifa, Einar Dagur Brynjarsson, Árni Benediktsson, Bergþóra Helga Gunnarsdótttir, Sigurður Sveinn Guðjónsson, Andri Sigurbjörnsson, Wiktoria Momuntjuk og Gabriella Weitonite.

Nú verður gert hlé á æfingunum fram yfir áramót. Næsta æfing verður á nýju ári mánudaginn 8. janúar 2018 og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Lyfjaval í Mjódd og salurinn er á þriðju hæð.