Borgarskákmótið fer fram miðvikudaginn 17. ágúst, og hefst það kl. 16:00. Mótið fer fram venju samkvæmt í Ráðhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagið Huginn, að mótinu, eins og þau hafa gert síðustu ár. Gera má ráð fyrir að margir af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar taka þátt í því. Skákmenn eru hvattir til að skrá sig sem fyrst eftir að opnað verður fyrir skráningu. Mótið verður reiknað til hraðskákstiga og er öllum opið og er þátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hægt að skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Tefldar verða 7 umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma. Þetta er í 31. sinn sem mótið fer fram og er þetta iðulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigraði Jón Viktor Gunnarsson, sem þá tefldi fyrir Malbikunarstöðina Höfða.

Verðlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.

Skráning:

Skráningarform

Skráðir keppendur: