Dawid Kolka sigraði í eldri flokki og Adam Omarsson í yngri flokki á æfingu sem haldin var í Mjóddinni þann 12. október sl. Dawid fékkk 5,5v af sex mögulegum. en Adam fékk fullt hús 5v í jafn mörgum skákum. Jafnir að vinningum og stigum í 2. og 3. sæti í eldri flokki voru Heimir Páll Ragnrsson og Óskar Víkingur Davíðsson með 4,5v. Þeir tefldu ekki innbyrðis og þurfti því bráðabana til að skilja á milli þeirra. Þar vann Heimir Páll sem fékk hvítt snarlega og fékk því annað sætið en Óskar það þriðja. Í yngri flokki var Óttar Örn Bergmann annar með 4v. Síðan komu Atli Róbertsson og Eiríkur Þór Jónsson jafnir að vinningum og stigum. Hér var gripið til hlutkestis og kom þriðja sætið í hlut Atla og það fjórða í hlut Eiríks.
Í æfingunni tóku þátt: Dawid Kolka, Heimir Páll Ragnarsson, Óskar Víkingur Davíðsson, Ísak Orri Karlsson, Baltasar Máni Wedholm, Stefán Orri Davíðsson, Freyja Dögg De Leon, Viktor Már Guðmundsson, Elfar Ingi Þorsteinsson, Viktor Már Guðmundsson, Sölvi Már Þórðarson, Adam Omarsson, Óttar Örn Bergmann Sigfússon, Atli Róbertsson, Eiríkur Þór Jónsson, Ólafur Björgvin Bæringsson og Jósef Omarsson.
Næsta æfing verður mánudaginn 19. október og hefst kl. 17.15. Æfingarnar eru í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Gengið er inn milli Subway og Fröken Júlíu og salurinn er á þriðju hæð.
