003_1211124Atskákmót Reykjavíkur sem jafnframt er atskákmót Hugins, suðursvæði fer fram mánudaginn 19. október.  Mótið fer fram í félagsheimili Hugins, Álfabakka 14a í Mjódd. Tefldar verða 6 umferðir með Svissnesku-kerfi og hefur hvor keppandi 15 mínútur á skák. Mótið hefst kl. 19:30.Verði tveir jafnir í baráttunni um annan hvorn titilinn verður teflt tveggja skáka hraðskákeinvígi.  Verði jafnt að því loknu verður hraðskákbráðabani. Verði fleiri en tveir jafnir verður tefld einföld umferð, hraðskák. Verði enn jafnt, þá bráðabani. Verði fleiri en tveir jafnir verður tefld einföld umferð, hraðskák. Verði enn jafnt þá bráðabani.

Núverandi atskákmeistari Reykjavíkur og atskákmeistari Hugins er Hjörvar Steinn Grétarsson.

Verðlaun:

1. 15.000

2. 8.000

3. 4.000

Þátttökugjöld:

16 ára og eldri: 1000 kr

15 ára og yngri: 500