31.3.2012 kl. 10:45
Einar vann í fyrstu umferð.
Fyrsta umferð áskorendaflokks Íslandsmótsins í skák fór fram í
gærkvöldi. Úrslit voru hefðbundin þ.e. hinir stigahærri unnu þá
stigalægri enda styrkleikamunur mikill.
Einar Hjalti Jensson vann Vigni Vatnar Stefánsson (1447) í 1. umferð og teflir við Árna Guðbjörnsson (1727) í 2. umferð sem fer fram í dag kl 14:00. Skák Einars verður í beinni útsendingu.