6.2.2014 kl. 01:15
Elsa María sigraði á hraðkvöldi
Elsa María Kristínardóttir sigraði á hraðkvöldi GM Hellis sem fram fór 3. febrúar. Elsa María fékk 6 vinninga af sjö mögulegum og tapaði ekki skák en gerði jafntefli við Örn Leó í 4. umferð og Gauta Pál í lokaumferðinni. annar varð sigurvegari síðasta hraðkvöld Örn Leó Jóhannsson með 5,5v og þriðji var Jóhanna Björg Jóhannsdóttir með 5v. Í lok hraðkvöldsins dró svo Elsa María í happdrættinu og þá hafði Gunnar Nikulásson heppnina með sér og fengu þau bæði gjafamiða á Saffran.
Næst viðburður í félagsheimili GM Hellis í Álfabakka 14a verður mánudaginn 10. febrúar kl. 20 og þá verður einnig hraðkvöld.
Lokastaðan á hraðkvöldinu:
| Röð | Nafn | Vinn. | TB1 | TB2 | TB3 |
| 1 | Elsa María Kristínardóttir | 6 | 26 | 19 | 22 |
| 2 | Örn Leó Jóhannsson | 5,5 | 27 | 19 | 19 |
| 3 | Jóhanna Björg Jóhannsdóttir | 5 | 26 | 18 | 18 |
| 4 | Vigfús Vigfússon | 4 | 27 | 19 | 10 |
| 5 | Hjálmar Sigurvaldason | 3,5 | 25 | 17 | 8,3 |
| 6 | Gauti Páll Jónsson | 3,5 | 24 | 17 | 9,5 |
| 7 | Gunnar Nikulásson | 3,5 | 23 | 16 | 8,3 |
| 8 | Sigurður Freyr Jónatansson | 3 | 26 | 19 | 8,5 |
| 9 | Sverrir Sigurðsson | 3 | 23 | 16 | 8 |
| 10 | Hörður Jónasson | 2 | 25 | 18 | 6,5 |
| 11 | Björgvin Kristbergsson | 1,5 | 23 | 16 | 3,8 |
| 12 | Pétur Jóhannesson | 1,5 | 23 | 15 | 2,8 |
