Erlingur Þorsteinsson Haustmeistari Goðans 2009 !

Erlingur Þorsteinsson (2123) sigraði á Haustmóti Goðans sem fram fór um helgina á Húsavík.  Lengi vel leit út fyrir sigur Smára Sigurðssonar (1665) en formaðurinn Hermann Aðalsteinsson reyndist honum örlagavaldur í lokaumferðinni er hann lagði Smára. 

Jakob Sævar, Erlingur  og Smári.
 

Jakob Sævar Sigurðsson, Erlingur Þorsteinsson og Smári Sigurðsson.

Bræðurnir Smári og Jakob Sævar Sigurðssynir urðu í 2.-3. sæti en Smári fékk annað sætið á stigum.  Snorri Hallgrímsson varð efstur unglinga með 3,5 vinning.    


Hlynur, sr Sighvatur, Sigurbjörn og Snorri.
 

                           Sr Sighvatur og”Lærisveinarnir”

Í mótslok fór fram verðlaunaafhending og fékk Erlingur afhendan forkunnarfagran farandbikar í framsóknarlitnum.  Fjórir keppendur voru dregnir af handahófi og fengu úrvals lambalæri frá Norðlenska sem aukaverðlaun. Þar á meðal var sjálfur sóknarprestur Húsvíkinga, Sighvatur Karlsson, og fengu verðlaunahafarnir þegar í stað viðurnefnið “presturinn og lærissveinarnir”!

Skákstjóri var Gunnar Björnsson.

Úrslit 7. umferðar:

 

Name Pts. Result  Pts. Name
Adalsteinsson Hermann  1 – 0  5 Sigurdsson Smari 
Thorsteinsson Erlingur  1 – 0  2 Karlsson Sighvatur 
Bessason Heimir  0 – 1  4 Sigurdsson Jakob Saevar 
Akason Aevar  1 – 0  2 Vidarsson Hlynur Snaer 
Einarsson Valur Heidar  1 0 – 1  3 Olgeirsson Armann 
Asmundsson Sigurbjorn  1 ½ – ½  3 Hallgrimsson Snorri 

 

Lokastaðan:

 

 

Rk. Name RtgI RtgN Club/City Pts.  TB1 Rp
1 Thorsteinsson Erlingur  2123 2040 Goðinn 5,5 28 1738
2 Sigurdsson Smari  0 1665 Goðinn 5 28,5 1749
3 Sigurdsson Jakob Saevar  1808 1745 Goðinn 5 27 1711
4 Akason Aevar  0 1560 Goðinn 4,5 29 1672
5 Adalsteinsson Hermann  0 1405 Goðinn 4,5 26,5 1639
6 Olgeirsson Armann  0 1420 Goðinn 4 18,5 1394
7 Bessason Heimir  0 1590 Goðinn 3,5 26,5 1572
8 Hallgrimsson Snorri  0 0 Goðinn 3,5 23 1466
9 Vidarsson Hlynur Snaer  0 0 Goðinn 2 22,5 1263
10 Karlsson Sighvatur  0 1325 Goðinn 2 22,5 1296
11 Asmundsson Sigurbjorn  0 1230 Goðinn 1,5 21 1141
12 Einarsson Valur Heidar  0 0 Goðinn 1 21 1030