4.10.2013 kl. 14:24
Gagnaveitumótið – Einar Hjalti efstur
Einar Hjalti Jensson (2305) gerði jafntefli við Stefán Bergsson (2131) í a-flokki Gagnaveitumótsins – Haustmóts TR sem fram fór sl. miðvikudagskvöld.
Einar Hjalti er efstur með 5,5 vinning í A-flokki, Jón Viktor Gunnarsson er annar með 5 vinninga og Stefán Kristjánsson þriðji með 4,5 vinning. Það stefnir því í æsispennandi lokaátök. Jón Viktor og Einar Hjalti mætast í sjöundu umferð sem fram fer á sunnudag.