Ádám Gulyás
Í dag hófst 18. Debreceni Sakk-Karnevál sem er skákmót í Debrecen í Ungverjalandi sem okkar maður Ádám Gulyás tekur þátt í.
Ádám byrjaði mótið af krafti þegar hann vann báðar skákirnar í sem tefldar voru í dag. Ádám lagði Celikbilek Aron Omer (1569) frá Ungverjalandi í fyrstu umferð með hvítu mönnunum og í 2. umferð lagði stýrði Ádám svörtu mönnunum til sigurs gegn ifj. Varga Gyula (1606) sem er einnig frá Ungverjalandi.
Á morgun verða tefldar tvær umferðir. Í 3. umferð verður Ádám með svart gegn Cirjan, Daniel (1830) frá Rúmeníu. 3. umferð hefst kl 9:00 að ungverskum tíma. Ádám er sem stendur efstur á mótinu ásamt 7 öðrum.
Ádám er 13 í stigaröðinni í B-flokki mótsins en alls tefla þar 36 keppendur, lang flestir heimamenn.

